Úlfur Úlfur - Tarantúlur

Описание к видео Úlfur Úlfur - Tarantúlur

Leikstjórn & framleiðsla : Magnús Leifsson - www.magnusleifsson.com
Kvikmyndataka : Þorsteinn Magnússon
Klipping : Sigurður Eyþórsson
Litgreining : Henrik Linnet
Aðstoð við framleiðslu : Gauti Þeyr Másson
Aðstoð við klippingu : Guðlaugur Andri Eyþórsson

Produced by: IamHelgi
Texti: Arnar Freyr, Helgi Sæmundur
Raddir: Arnar Freyr, Edda Borg Stefánsdóttir, Helgi Sæmundur
Hljóðblöndun: Helgi Sæmundur, Reddlights
Master: Reddlights

Sérstakar þakkir : Bílaklúbbur Akureyrar, Bíladagar og allir þeir sem koma fram í myndbandinu og tóku vel á móti okkur á Akureyri.

Þakkir : Atli Guðbrandsson, Geoffrey Huntington-Williams, Gunnar Gunnarsson, Edda Borg Stefánsdóttir, Elfar Már Viggósson, Friðrik Högnason, Viktor Agnar Guðmundsson, Halldór Helgason, Hulda Halldóra Tryggvadóttir, Indie Rental, Logi Pedro Stefánsson, María Hrund, Kexland og allir þeir sem lögðu hönd á plóg og hjálpuðu okkur við að gera þetta að veruleika.

Skotið á Akureyri júní 2014.


Texti:

Úlfurinn rúllar með rómverskum gyðjum og stóískum hómís
Eldist um helming og drekk fyrir tvo líkt og óléttur róni
Allir á hlaupum en ég týni rósir á rólegu róli
Með kórónu og bóner og vakna hvern morgun í blóðugu bóli
Finnið mig liggjandi í snjó
ég er svo fokking emo
Rita ólæsileg ljóð
Mín hinsta bón
Gefið mér ábót af kaffi og eina milljón
Dreymir um heimili, konu og barn
Einnig um eilífar nætur og svall
Greini ekki muninn á himinn og hel
Vil ég peninga og skart eða rennandi vatn?
úlfur úlfur, tarantúllur
Flýgur eins og skúmur og tala tungum
ég og þú og fullt tungl, liggjum bara og kúrum
Vel bakaður og mjúkur, kanilsnúður
ég myrði sucka mc og hater
Eldfimari en bensín, V-power
þú átt ekki séns í þetta hér
Mér líður vel
Eigin herra, eigin frú
úlfar víkka heilabú
Tvö tré, hengirúm
Nóg um mig, hvað segir þú?


Mig skortir ekki neitt
ég fer mína eigin leið
þarf ekki silfurskeið
ég er á grænni grein

Lífið er endalaust
En lífið er stutt
ég nýt þess á meðan ég get
þangað til að ég gefst upp
á toppi ég frýs
á botni ég bráðna
Allir vilja fljóta með straumnum en drukkna í meðalmennskunni og grána
Gleymast og hverfa og þau stálpast, eyða svo ævi sinni í það að langa
í eitthvað annað en það sem þau þráðu á meðan þau lærðu og píndu sig áfram
En ég ber mig vel
Ekkert að mér
Blankur í gær en í dag lifi vel
því lífið er endalaust, lífið er kjaftæði
Lífið er draumur og lífið er martraðir
Eina sem dregur þig áfram að markmiði
Er harkan og viljinn til þess eins að standa þig
Standandi á sama um alla sem hata þig
Er stærsti kostur sem hægt er að hafa því mannfólkið er
Kalt og það drepur og skríður í skel
étur og skítur og sefur svo vel
Ríður og fjölgar sér, ríður og fer
Bítur og klórar til að bjarga sér
Fýrar í shitti og drekkur sig í hel
Tekur frá öðrum og gefur frá sér
Velur sér foringja og hlýðir því sem
Stærsta dýrið vill að sé gert
Og það er úlfur úlfur

Комментарии

Информация по комментариям в разработке