STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Gjáhella 5, 221 Hafnarfirði. Einstaklega vandað 209,6 fm atvinnuhúsnæði með fallegri íbúð á efri hæð, eignin er endabil. Á fyrstu hæð er stór salur, birt stærð 108,4 fm, stór bílskúrshurð og salernisaðstaða. Á annarri hæð, birt stærð 101,2 fm, eru þrjú herbergi/skrifstofur, rúmgott þvottahús, stílhreint baðherbergi, alrými og sérlega vandað eldhús. Engin vsk kvöð. Hér er um að ræða sérlega vandaða eign sem býður uppá mikla möguleika.
Pantið tíma fyrir skoðun, nánari upplýsingar veita:
Hallveig Jónsdóttir, Nemi í löggildingu, í síma 699-0496, netfang [email protected]
Benedikt Ólafsson, Löggiltur fasteignasali, í síma 661-7788, netfang [email protected]
Nánari lýsing.
Fyrsta hæð:
Birt stærð 108,4 fm, salur með nýmálaðu gólfi og veggjum, salernisaðstaða með flísum og upphengdu salerni, stór bílskúrshurð með rafrænni opnun. Mikil lofthæð. Salerni er í framkvæmdum og mun seljandi klára þær framkvæmdir. Undir stiga er tæknirými og geymslupláss.
Önnur hæð:
Gengið upp flísalagðan stiga upp á aðra hæð. Öll hæðin er nýuppgerð.
Þrjú rúmgóð herbergi/skrifstofur, rúmgott þvottahús.
Stílhreint baðherbergi með flísum í hólf og gólf, handklæðaofn, upphengt salerni.
Alrými er stórt og góð lofthæð, með gólfhita.
Eldhús er með gólfhita, vandað og með eldhúsinnréttingu frá HTH, Ormsson, innbyggð AEG uppþvottavél, Innbyggður AEG ísskápur, glæsilegar AEG spanhellur með innbyggðri viftu.
Harðparket og flísar á gólfi og flísalagt baðherbergi.
Samkvæmt húsfélagsyfirlýsingu stendur til að settar verði svalir og opnast þá möguleiki á að hafa efri hæðina sem íbúðarhúsnæði, til er fyrir þessum framkvæmdum í hússjóði.
Eignin er skráð á B3 og M8. Unnið er að lokaúttekt.
Информация по комментариям в разработке