Beebee and the Bluebirds í Stúdíói 12 (Rás 2 - Poppland)

Описание к видео Beebee and the Bluebirds í Stúdíói 12 (Rás 2 - Poppland)

Hljómsveitin Beebee and the Bluebirds sendi frá sér nýja breiðskífu í vetur sem heitir „Out of the Dark“ og hélt upp á útgáfuna föstudaginn 9. mars 2018, með tónleikum á Gauknum. Sveitin leit við í Stúdíó 12 fyrr um daginn og tók nokkur lög fyrir hlustendur Rásar 2.

Brynhildur Oddsdóttir, eða Beebee, er forsprakki sveitarinnar en hún syngur og leikur á gítar. Með henni í hljómsveitinni eru þeir Brynjar Páll Björnsson sem spilar á bassa, Ásmundur Jóhannsson trommuleikari, Steinþór Guðjónsson leikur á gítar og Tómas Jónsson á píanó.

Комментарии

Информация по комментариям в разработке