Logo video2dn
  • Сохранить видео с ютуба
  • Категории
    • Музыка
    • Кино и Анимация
    • Автомобили
    • Животные
    • Спорт
    • Путешествия
    • Игры
    • Люди и Блоги
    • Юмор
    • Развлечения
    • Новости и Политика
    • Howto и Стиль
    • Diy своими руками
    • Образование
    • Наука и Технологии
    • Некоммерческие Организации
  • О сайте

Скачать или смотреть Passíusálmarnir að fornu og nýju, 40. sálmur

  • Kordía Kór Háteigskirkju
  • 2022-04-05
  • 23
Passíusálmarnir að fornu og nýju, 40. sálmur
  • ok logo

Скачать Passíusálmarnir að fornu og nýju, 40. sálmur бесплатно в качестве 4к (2к / 1080p)

У нас вы можете скачать бесплатно Passíusálmarnir að fornu og nýju, 40. sálmur или посмотреть видео с ютуба в максимальном доступном качестве.

Для скачивания выберите вариант из формы ниже:

  • Информация по загрузке:

Cкачать музыку Passíusálmarnir að fornu og nýju, 40. sálmur бесплатно в формате MP3:

Если иконки загрузки не отобразились, ПОЖАЛУЙСТА, НАЖМИТЕ ЗДЕСЬ или обновите страницу
Если у вас возникли трудности с загрузкой, пожалуйста, свяжитесь с нами по контактам, указанным в нижней части страницы.
Спасибо за использование сервиса video2dn.com

Описание к видео Passíusálmarnir að fornu og nýju, 40. sálmur

40. passíusálmur: Þriðja orð Kristí á krossinum
Laggerð: Valgerður Gísladóttir frá Vagnsstöðum í Suðursveit
Bára Grímsdóttir syngur

1
Upp á ræningjans orð og bón
ansaði guðs hinn kæri son:
Þú skalt, sannlega segi eg þér,
sæluvist hafa í dýrð hjá mér. -
2
Sjáðu með gætni, sál mín kær,
sönn iðrun hverju kraftað fær.
Upp á það dæmið er hér rétt
öllum til lærdóms fyrir sett.
3
Reiði drottins þá upp egnd er
yfir ranglæti mannsins hér,
iðranin blíðkar aftur guð;
ei verður syndin tilreiknuð.
4
Þó komi höstug hefndin bráð,
hrein iðran jafnan finnur náð.
Mitt í standandi straffi því
stillist guðs reiði upp á ný.
5
Samvisku orma sárin verst
sönn iðran jafnan græðir best,
hugsvalar sál og huggar geð,
heilaga engla gleður með.
6
Bæn af iðrandi hjarta hýr,
hún er fyrir guði metin dýr.
Herrann Jesús á hverri tíð
henni gaf jafnan andsvör blíð.
7
Sem Móises með sínum staf
sætt vatn dró forðum steini af,
eins fær iðrandi andvarp heitt
út af guðs hjarta miskunn leitt.
8
Játning mín er sú, Jesú minn,
ég er sem þessi spillvirkinn,
já, öngu betri fyrir augsýn þín,
ef þú vilt reikna brotin mín.
9
Kem ég nú þínum krossi að,
kannastu, Jesú minn, við það.
Syndanna þunginn þjakar mér,
þreyttur ég nú að mestu er.
10
Alnakinn þig á einu tré,
út þínar hendur breiðandi,
sárin og blóðið signað þitt
sér nú og skoðar hjartað mitt.
11
Þar við huggar mín sála sig,
svoddan allt leiðstu fyrir mig.
Þíns hjartadreyra heilög lind
hreinsar mig vel af allri synd.
12
Krossins burt numinn kvölum frá
kóngur ríkir þú himnum á.
Herra, þá hér mig hrellir pín,
hugsaðu í þinni dýrð til mín.
13
Segðu hvern morgun svo við mig,
sæti Jesú, þess beiði eg þig:
Í dag þitt hold í heimi er,
hjartað skal vera þó hjá mér.
14
Í dag, hvern morgun eg svo bið,
aldrei lát mig þig skiljast við.
Sálin, hugur og hjartað mitt
hugsi og stundi á ríkið þitt.
15
Eins þá kemur mín andlátstíð,
orðin lát mig þau heyra blíð:
Í dag, seg þú, skal sálin þín
sannlega koma í dýrð til mín.
16
Herra minn, þú varst hulinn guð,
þá hæðni leiðst og krossins nauð.
Þó hafðir þú með hæstri dáð
á himnaríki vald og ráð.
17
Dauðanum mót mér djörfung ný
daglega vex af orði því:
Í dag, - þá líður ei langt um það,
leidd verður önd í sælustað.
18
Ó, Jesú, séu orðin þín
andláts síðasta huggun mín.
Sál minni verði þá sælan vís
með sjálfum þér í Paradís.

Комментарии

Информация по комментариям в разработке

Похожие видео

  • О нас
  • Контакты
  • Отказ от ответственности - Disclaimer
  • Условия использования сайта - TOS
  • Политика конфиденциальности

video2dn Copyright © 2023 - 2025

Контакты для правообладателей [email protected]