Feneyjaskráin. Grunnur að verndarstarfi í 60 ár.

Описание к видео Feneyjaskráin. Grunnur að verndarstarfi í 60 ár.

Á alþjóðadegi menningarminja 18. apríl verður haldið málþing í tilefni þess að í ár eru liðin 60 ár frá því að Feneyjaskráin var gefin út. Fjallað verður um gildi Feneyjarskrárinnar sem er leiðarljós í starfi ICOMOS. Með Feneyjaskránni voru settar fram alþjóðlegar viðmiðunarreglur um varðveislu og endurgerð minja og minjastaða.
Erindi flytja:
Guðný Gerður Gunnarsdóttir, formaður Íslandsdeildar ICOMOS: Feneyjaskráin: Grunnur að verndarstarfi í 60 ár.
Alberte Klysner Steffensen, arkitekt PhD, fræðimaður við Arkitektaskólann í Árósum:
From Monuments to Living Heritage: Revisiting the Venice Charter in the Face of the Contemporary. (Erindið verður flutt á ensku gegnum fjarfundarbúnað).
Rúnar Leifsson, forstöðumaður Minjastofnunar Íslands: Frá Feneyjum til Íslands.
Hjörleifur Stefánsson, arkitekt: Feneyjaskráin: Hagnýt viðmið eða fílabeinsturn?
Umræður verða að erindum loknum.
Gert er ráð fyrir að málþinginu ljúki um kl. 16.30.

Комментарии

Информация по комментариям в разработке